Störf þingsins.
Frú forseti. Frú forseti, Undanfarna daga höfum við rætt mikilvægt mál hér í þingsal um greiðslur almannatryggingakerfisins og með hvaða hætti þær greiðslur eigi að hækka á komandi árum. Það að láta greiðslur almannatrygginga fylgja launavísitölu og stöðva þar með kjaragliðnun í almannatryggingakerfinu bætir stöðu þeirra verst settu.
Ég sótti mjög áhugavert málþing sem ÖBÍ réttindasamtök héldu í síðustu viku. Þar var farið yfir niðurstöður könnunar er varðar lífskjör og heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Þar fengum við m.a. að sjá raunverulega stöðu öryrkja og þeirra lægst launuðu hér á landi. Niðurstöður voru sláandi og kemst ég ekki yfir þær allar á tveimur mínútum. En eftir að hafa hlustað á þær fjölmörgu ræður sem fluttar voru hér í þingsal, hefði ég ekki vitað betur, hefði ég líklega haldið að staðan væri svona glimrandi góð, öryrkjar og ellilífeyrisþegar byggju við svo miklar allsnægtir og að ef greiðslurnar myndu fylgja launavísitölu Hagstofu Íslands þá færi raunar allt á hliðina í samfélaginu vegna aukinnar þenslu. Þetta er hins vegar ekki hópurinn sem býr við allsnægtir. Samkvæmt þeirri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir ÖBÍ kemur jafnframt fram að örorkulífeyristakar eru meira en tvöfalt líklegri en aðrir til að fresta læknisþjónustu vegna kostnaðar og að sleppa því að taka lyf af sömu ástæðu.
Það er löngu tímabært að vinna að bættri stöðu þeirra sem hafa það verst í okkar samfélagi. Þetta á bæði við um tekjulægsta fólkið á vinnumarkaði sem og þau sem falla af vinnumarkaði vegna veikinda eða hætta vegna aldurs. Forgangsröðum í þágu fólksins í stað fjármagnseigenda — það er okkar skylda en augljóslega ekki vilji allra hér í salnum. Fólkið munar um þetta og klárum þetta mál.