Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Um þessar mundir standa yfir vetrarólympíuleikar í Mílanó og Cortina á Ítalíu. Þar eigum við Íslendingar fimm öfluga keppendur. Ég er sannfærður um að þingheimur allur taki undir með mér þegar ég óska þeim Degi, Kristrúnu, Jóni Erik, Elínu og Sonju Lí góðs gengis. Hér á landi eru stundaðar flestar þær vetraríþróttir sem fyrirfinnast. Öðruvísi mætti það varla vera í því vetrarríki sem við búum við langstærstan hluta ársins, sérstaklega í norðurhluta landsins. Skíðaíþróttir, bæði göngu- og alpagreinar, eru fólki ofarlega í huga en auk þess hafa Íslendingar náð eftirtektarverðum árangri á snjóbrettum. Þá má auðvitað ekki gleyma skautaíþróttunum, íshokkí og listskautum, þar sem Ísland á reglulega keppendur á alþjóðlegum mótum.
Frú forseti. Árið 1995 var sérstök Vetraríþróttamiðstöð Íslands sett á fót sem samstarfsverkefni ríkisins, Akureyrarbæjar og íþróttahreyfingarinnar. Allt frá upphafi hefur hlutverk hennar verið að efla vetraríþróttir, íþróttafræðslu og útivist. Markmiðið er að stuðla að heilbrigðum lífsstíl meðal almennings, skólafólks og fatlaðs fólks, auk þess að styðja við bakið á keppnis- og afreksfólki í hefðbundnum vetraríþróttum. Þótt miðstöðin hafi farið kröftuglega af stað á sínum tíma fór fljótlega að fjara undan starfseminni og á tímabili lá miðstöðin í ákveðnum dvala. Árið 2024 var hins vegar undirritaður samningur milli mennta- og barnamálaráðherra og stjórnar miðstöðvarinnar um mótun tillagna um framtíðarsýn og næstu verkefni. Þau sem að þeim samningi stóðu eiga hrós skilið og eftir því sem ég kemst næst liggur afrakstur vinnunnar nú fyrir. Núna þurfa orðum að fylgja athafnir.
Ég hvet því núverandi hæstv. mennta- og barnamálaráðherra til að fylgja þessu verkefni eftir svo umgjörð vetraríþrótta á Íslandi taki raunveruleg skref fram á við. Hver veit nema þau skref skili okkur Íslendingi á verðlaunapall á vetrarólympíuleikum framtíðarinnar?