157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Störf þingsins.

[14:09]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Í síðustu viku ræddi ég hér á Alþingi um að fara þyrfti varlega ef stjórnvöld ætla að breyta umgjörð verðtryggingar á húsnæðismarkaði. Umræðan hefur aukist síðustu daga og þess vegna ítreka ég þessi orð, ekki vegna þess að markmiðið sé rangt heldur vegna þess að leiðin að markmiðinu skiptir öllu. Ég heyri víða sömu spurninguna: Hvað þýðir þetta fyrir heimilin, fyrir ungt fólk sem er nýkomið inn á markaðinn og fyrir minni samfélög hringinn í kringum landið? Ég hitti ungt par um síðustu helgi. Þau spurðu einfaldlega: Eigum við að bíða eða flýta okkur með fasteignakaup? Eru reglurnar ekki að fara að breytast? Umræður um breytingar eru farnar að hafa áhrif.

Við búum við hátt vaxtastig, þráláta verðbólgu og þrýsting á kaupmátt. Í slíku umhverfi verður hver breyting á grunnreglum húsnæðismarkaðarins að vera óvenjuvel undirbúin. Þess vegna vil ég hvetja hæstv. fjármálaráðherra til að tryggja að næsta fjármálaáætlun fjalli um þessar breytingar þannig að Alþingi og almenningur fái tiltölulega skýra mynd af næstu skrefum. E.t.v. verður erfitt að skýra frá breytingum af mikilli nákvæmni en gegnsæið er hér lykilatriði og, frú forseti, Framsókn styður allar aðgerðir sem færa fasteignamarkað nær jafnvægi og draga úr áhættu heimilanna. Kannski þarf alveg nýja hugsun sem snýr að fasteignamarkaði en við þurfum að hafa kjark til að ræða slíkt. En það verður sömuleiðis að gera af mikilli yfirvegun.