157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Störf þingsins.

[14:14]
Horfa

Þóra Gunnlaug Briem (Flf):

Frú forseti. Flokkur fólksins hefur frá upphafi barist fyrir velferð dýra og nýlega var lögð fram skýrsla að beiðni hv. þm. Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur og fleiri þingmanna um aðbúnað og velferð svína. Sú sem hér talar er ein fjölmargra sem hafa fengið ígrædda líkamshluta úr svínum og á þessum dýrum því lífið að þakka. Það er því ömurlegt að vita til þess að svínum sé haldið í of þröngum stíum og séu iðulega með slæm legusár af þeim sökum. Grísir þurfa að geta leikið sér og fá umhyggju frá mæðrum sínum en þær fá ekki tækifæri til að hugsa um þá, sem leiðir m.a. til halanags. Þess vegna hafa svínaræktendur klippt halann af nokkurra daga gömlum grísum, sem er þó aðeins leyfilegt í undantekningartilvikum, og það án deyfingar, sem er ekkert annað en ill meðferð á dýrum. Okkur ber skýr siðferðileg skylda til að fara vel með öll dýr, ekki síst þau sem við nýtum til matvælaframleiðslu og annarra þarfa okkar, og ef til slátrunar kemur að það fari fram af virðingu og án þjáninga fyrir dýrið. Rannsóknir sýna að svín eru afburðagreind dýr, hreinlát, félagslynd og mjög skemmtileg.

Frú forseti. Þegar ég hugsa um Ísland dettur mér í hug stórbrotin náttúra og þessi mikla víðátta sem við erum svo stolt af, þar sem dýrin hafa nægt rými til að ganga um frjáls og að þetta sé land samkenndar með mönnum og dýrum þar sem frelsi og andrými er haft í hávegum. Við viljum teljast til siðmenntaðra þjóða en sá mælikvarði ræðst m.a. af því hvernig við komum fram við dýrin okkar. Við þurfum öll að leggjast á eitt til að gera landið okkar betra. Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá. Látum verkin tala.