157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Störf þingsins.

[14:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Á fimmtudaginn síðastliðinn kom út afbragðsgóð skýrsla Viðskiptaráðs undir yfirskriftinni Atlantshafsálagið: Ísland innan ETS-kerfisins. Þetta er mikilvægt innlegg í umræðuna vegna þess hversu alvarlegt málið er og þeirra áhrifa sem ETS-kerfið hefur og mun hafa á samkeppnisstöðu Íslands. Við þekkjum öll þessi hugtök: „Fit for 55“, Parísarsamkomulagið, efnahagslegur sjálfsskaði, undanbrögð stjórnvalda frá því að sækja réttmætar undanþágur frá regluverki sem ekki á við hér á landi. Minni hagvöxtur, minni fjárfesting, árangursleysi, flótti stjórnvalda frá því verkefni að verja raunverulega hagsmuni Íslands.

Það er hér í gangi einhvers lags keppni í efnahagslegum sjálfsskaða og þar er ETS-kerfið algert lykilatriði. Það er það sem er svo mikilvægt í þessari skýrslu Viðskiptaráðs sem kom fram hér síðastliðinn fimmtudag. Ég vil í því ljósi hvetja hæstv. forseta til að hlutast til um að sá ráðherra sem heldur á vörn Íslands og málarekstri í þessum málaflokki komi hér í skýrsluumræðu í þinginu, leggi á borðið með hvaða hætti er verið að reyna að tryggja Íslendingum og íslenskum fyrirtækjum og heimilum varanlegar undanþágur frá því regluverki sem hér er undir, eða að öðrum kosti; með hvaða hætti íslensk stjórnvöld ætla að draga Ísland út úr þessu ólukkans fargani.

Þingmenn Miðflokksins hafa lengi, árum saman, bæði í ræðu og riti ,varað við áhrifum þessa máls. Þau voru augljós. Það var einhvern veginn þannig að Evrópusambandið plataði fyrri ríkisstjórn til að fallast á þetta undir þeim formerkjum að fá undanþágu út árið 2026. Nú er árið 2026 runnið upp og 1. janúar 2027 verður þetta kerfi, með öllum sínum þunga og öllum sínum skaða, innleitt að fullu hér á Íslandi með hrikalegum áhrifum fyrir íslensk flugfélög, fyrir skipafélög og fyrir allan rekstur sem (Forseti hringir.) nýtur flutningsvöruþjónustu bæði til og frá landinu.

Frú forseti. Ég ítreka: Ég vil óska eftir því að forseti (Forseti hringir.) hlutist til um að sérstök skýrsluumræða fari fram þar sem þessi mál verði rædd í þaula og með hvaða hætti hagsmunavörslu Íslands hefur verið háttað undanfarin misseri.