157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Störf þingsins.

[14:24]
Horfa

Valdimar Breiðfjörð Birgisson (V):

Frú forseti. Húsnæðisskortur á höfuðborgarsvæðinu er ein stærsta áskorun sem samfélagið stendur frammi fyrir. Samkvæmt spám þarf að byggja um 4.000 íbúðir á ári til að mæta fólksfjölgun og uppsafnaðri þörf. Takist það ekki mun fasteignaverð halda áfram að hækka, kaupgeta ungs fólks minnka og þrýstingur á leigumarkaði aukast. Viljinn til uppbyggingar er skýr en mörg sveitarfélög standa frammi fyrir hindrun sem er fjárhagslegt þol þeirra. Uppbygging krefst ekki aðeins íbúða heldur einnig innviða, svo sem grunnskóla, leikskóla, íþróttamannvirkja og sambýla og þessi innviðauppbygging er framþung. Sveitarfélög þurfa að fjárfesta áður en íbúar flytja inn og útsvarstekjur fara að skila sér. Á meðan hlaðast skuldir upp, oft nálægt þeim viðmiðum sem sveitarfélögum eru sett og vaxtaumhverfi þeirra er ótryggt. Ein leiðin til að mæta þessu er innviðasjóður með aðkomu lífeyrissjóða þar sem áhætta og fjármögnun deilist betur.

Frú forseti. Samhliða húsnæðisuppbyggingu eykst umferð. Árið 2019 stóðu öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og ríkið að samgöngusáttmála vegna þess að umferðin var að stefna í óefni. Við mótun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins frá árinu 2015 var því spáð að íbúum myndi fjölga um 70.000 til ársins 2040. Sú spá hefur heldur betur gengið eftir og íbúum hefur fjölgað um tugi þúsunda frá því að þessi spá var sett fram, fram yfir spár. Hafi oft verið þörf, þá er nú nauðsyn. Samkvæmt samgöngusáttmálanum fer um 42% af fjármagninu í borgarlínu og um 13% í almenningssamgöngur, 42% fara í einkabílinn. Reynsla annarra borga sýnir að samfélög sem blanda saman öflugum almenningssamgöngum, öruggum vegum og virkum ferðamátum ná bestum árangri. Það er ekki sjálfbært að þenja byggð út endalaust og malbika yfir græn svæði til þess að finna bílastæði.