157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Störf þingsins.

[14:33]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla, eins og hv. þm. Bergþór Ólason, að fjalla aðeins um losunarskattana. Í nýju ársuppgjöri Icelandair, sem birt var nú fyrir helgi, kemur fram að umhverfiskostnaður fyrirtækisins nam yfir 5 milljörðum kr. á síðasta ári. Þessi kostnaður mun að óbreyttu hækka umtalsvert á næstu árum vegna aukinna krafna um notkun á sjálfbæru flugvélaeldsneyti. Kostnaðurinn gæti hæglega tvöfaldast innan fárra ára og þrefaldast til lengri tíma. Ísland er innan losunarkerfis Evrópusambandsins, ETS, sem sett var á með það að markmiði að hvetja fleiri til að nota lestir innan og á milli Evrópulanda. En sökum þess að sá samgöngumáti á ekki við á okkar eyju fékk Ísland sérlausn og undanþágur frá ýtrustu kröfum. Sú sérlausn rennur út í lok þessa árs án þess að nokkur fyrirsjáanleiki sé til staðar varðandi framhaldið. En samt eru flugferðir á árinu 2027 þegar farnar í sölu. Samkvæmt samkomulagi við ESB á að vera búið að meta áhrifin af losunarkerfinu fyrir Ísland fyrir árslok 2026, sem er eftir nokkra mánuði. Þessi tímasetning hefur svo sannarlega legið fyrir. Því þurfa ráðherrar ríkisstjórnarinnar að svara því fyrr en síðar hvernig samtalið gengur við ESB vegna þessa. Hér er um gríðarlega hagsmuni að ræða fyrir fyrirtækin og á endanum alla Íslendinga því náist ekki að semja um áframhaldandi sérlausn munu umhverfisskattarnir hafa afar slæm áhrif á samkeppnisstöðu Íslands og ferðaþjónustuna, þeir munu hækka flugfargjöld verulega og verðlag vöru sem flutt er inn til landsins og jafnframt draga úr tengingum okkar við umheiminn. Því er afar brýnt að hagsmunagæslu Íslands sé sinnt af krafti. Fyrirsjáanleiki er fyrirtækjunum mjög mikilvægur. Því þarf að svara strax: Hvernig gengur samtalið við Brussel vegna losunarskattanna?