157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Staða barnafjölskyldna.

[14:44]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér um stöðu barnafjölskyldna. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, fyrir að efna til umræðu um þetta mikilvæga málefni. Það er hlutverk hins opinbera að styðja við barnafjölskyldur, hjálpa þeim að ala upp börn sín á farsælan hátt. Börnin eru jú framtíð þjóðarinnar. Við verðum líka að átta okkur á því að fjölskyldur eru fjölbreyttar og samfélagið þarf að standa með öllum börnum og hlúa sérstaklega að þeim sem ekki búa við öflugt bakland. Við viljum vera þjóð sem tryggir að enginn sé skilinn eftir, að öll börn, óháð efnahag eða aðstæðum foreldra þeirra, hafi jöfn tækifæri í lífinu.

Málshefjandi spyr hvort stuðla eigi sérstaklega að velferð fjölskyldunnar. Svarið er afdráttarlaust: Já. Ríkisstjórnin hefur þegar gripið til ýmissa aðgerða til að stuðla að velferð fjölskyldunnar. Á síðasta ári gerðum við umfangsmiklar breytingar á fæðingarorlofskerfinu. Við lengdum fæðingarorlof fjölburaforeldra þannig að foreldrar fái sex mánaða viðbótarfæðingarorlof fyrir hvert barn umfram eitt. Þá efldum við réttindi þeirra foreldra sem veikjast á meðgöngu. Þetta eru raunverulegar úrbætur sem mæta þörfum fjölskyldna þegar mest á reynir. Einnig tryggðum við að allar þær breytingar sem verða á fæðingarorlofskerfinu muni ná til allra foreldra í fæðingarorlofi. Sú breyting hefur þegar haft veruleg áhrif til góðs hjá þeim sem voru í fæðingarorlofi þegar hækkun á hámarki greiðslna tók gildi nú um áramótin.

Síðar í dag er hér til umræðu mikilvægt réttindamál sem tryggir að afkoma lífeyrisþega fylgi launaþróun í landinu. Það er svo sannarlega mikilvægt fyrir fjölskyldur þar sem annað foreldri eða bæði eru óvinnufær.

Stærsta kjaramál samtímans, sérstaklega fyrir barnafjölskyldur, er húsnæðiskostnaður. Og hvað er það áhrifamesta sem stjórnvöld geta gert í þeim málaflokki? Það er að ná niður vöxtum og ná niður verðbólgu. Það gerum við með því að sýna ábyrgð og aðhald í ríkisfjármálum og með því að stuðla að auknu framboði íbúða. Þetta er lang, langstærsta kjaramálið sem snýr að fjölskyldum þessa lands. Við þurfum að ná jafnvægi á húsnæðismarkaðnum og það er nauðsynlegt að tryggja framboð íbúða í takt við eftirspurn með því að koma nýjum hverfum í uppbyggingu. Það þarf einnig að huga að félagslegri blöndun og tryggja úrræði fyrir bæði efnaminni kaupendur og fyrstu kaupendur. Við í Flokki fólksins höfum lagt áherslu á að hefja skuli uppbyggingu nýrra hverfa, m.a. með uppbyggingu í Úlfarsárdal. Þar höfum við lagt til samstarf Reykjavíkurborgar og verkalýðshreyfingarinnar til að koma af stað þeirri uppbyggingu. Einnig er mikilvægt að þrýsta á hraðari uppbyggingu í hverfum eins og við Keldur eða í Keldnaholti og sömuleiðis að styðja við uppbyggingu í Blikastaðalandi og jafnframt að styðja við sveitarfélög varðandi kostnaðarþátttöku hins opinbera varðandi innviðauppbyggingu.

Skömmu fyrir jól samþykkti þingið frumvarp um endurskoðun hlutdeildarlánakerfisins. Meðal breytinga var hækkun á lánshlutfalli og tekjuviðmiðum en frumvarpið er strax farið að bera ávöxt. Í fyrsta mánuði úthlutunarinnar eftir lagabreytinguna jókst eftirspurn og var úthlutað 31 láni í fyrstu úthlutun en mánuðina þar á undan voru það einungis átta. Það er gaman að segja frá því að síðar í dag hefst uppbygging á þróunarreit í Hafnarfirði en í því verkefni verða byggðar í fyrsta fasa í það minnsta 60 hlutdeildarlánaíbúðir. Verkefnið í heild sinni telur um 380 íbúðir. Þetta eru raunverulegar breytingar sem eru strax farnar að skila árangri og munu hjálpa barnafjölskyldum að eignast öruggt heimili.

Ég hlakka til að leggja fram mitt fyrsta frumvarp sem ráðherra, en það er frumvarp sem mun auka hlutfall stofnframlaga fyrir uppbyggingu almennra íbúða, nokkuð sem ákall hefur verið eftir, til að tryggja að stofnframlögin gangi út og að óhagnaðardrifnum leiguíbúðum fjölgi til mikilla muna. Það getur skipt sköpum fyrir barnafjölskyldur að komast af almennum leigumarkaði og í íbúð hjá óhagnaðardrifnu leigufélagi. Þarna getur munað rúmum 100.000 kr. á mánaðarlegum greiðslum. Auk þess að einfalda stjórnsýslu þá viljum við öll hafa hag barnafjölskyldna sem bestan. Það gerum við með því að tryggja nægt framboð á íbúðum og stuðla þannig að lækkun verðbólgu og vaxta. Það gerum við með því að efla menntakerfið. Það gerum við með opinberum stuðningi í gegnum fæðingarorlofskerfið, í gegnum hlutdeildarlánakerfið, í gegnum almenna íbúðakerfið og í gegnum skattkerfið sjálft, svo sem með barnabótum.

Ríkisstjórnin er einhuga um að styðja við fjölskyldur þessa lands og ég treysti því að aðrir stjórnmálaflokkar séu sammála okkur um það markmið. — Ég hef lokið máli mínu.