Staða barnafjölskyldna.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir að efna til þessarar umræðu. Mér þótti leiðinlegra að heyra í hæstv. ráðherra því að það er augljóst að orð og efndir fara ekki saman. Það hljómaði allt mjög vel, en hverjar eru aðgerðirnar? Það eru skattahækkanir sem bitna verst á ungu barnafjölskyldum og þeim sem verst hafa það. Það var varað við því að verðbólgan myndi aukast og að vextir myndu hækka. Engu að síður keyrði þessi ríkisstjórn áfram og það bitnaði á ungum barnafjölskyldum og þeim sem hafa það verst. Þannig að orð og efndir fara ítrekað ekki saman.
Fyrirheitin eru hins vegar fögur; að jafna stöðu barna sem hafa það verst. En ég ítreka: Aðgerðirnar sýna það ekki. Við þessu var öllu varað en á það var ekki hlustað. Ég velti fyrir mér, og mögulega getur hæstv. ráðherra svarað því þegar hún kemur upp á eftir: Hvert er planið? Er planið að fyrir þá sem ekki vilja vera á kerfinu sé eini möguleikinn að fara á kerfið? Því að allar aðgerðir þessarar ríkisstjórnar snúa að því að ríkisvæða eignir fólks, ríkisvæða allt sem kemur að ungu fólki. Það á ekki að geta keypt sér þak yfir höfuðið nema ríkið stígi þar inn. Hvar eru aðgerðirnar fyrir barnafjölskyldur, duglegt fólk, sem vill ekki og þarf ekki að vera á framfæri ríkisins? Hvar eru þær aðgerðir? Þær er ekki að finna hjá þessari ríkisstjórn. Af hverju erum við alltaf að ýta undir það að fólk geti ekki bjargað sér sjálft? Mér þótti þetta leiðinlegt. Nokkur dæmi frá því fyrir jól sem voru alveg afleit og hjálpuðu ekki barnafjölskyldum voru t.d. hækkaðir skattar á leigutekjur, samsköttun hjóna og kílómetragjaldsflækjustig. Allt þetta bitnar á barnafjölskyldum. Ég styð fyrirheitin um góð fyrirheit, að bæta aðstæður barnafjölskyldna, en það sem þessi ríkisstjórn er að gera er ekki það.