Staða barnafjölskyldna.
Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, fyrir að stuðla að þessari umræðu, hún er mjög mikilvæg. Staða barnafjölskyldna er oft ansi viðkvæm hér á landi. Við búum sem betur fer í norrænu velferðarsamfélagi þar sem við nýtum okkar sameiginlegu sjóði til þess að styðja við bakið á fjölskyldum. Við þurfum að standa vörð um fólkið okkar og fjölskyldurnar. Við sem samfélag þurfum að halda áfram stuðningi sem getur verið í formi barnabóta, fæðingarorlofs, sveigjanleika á vinnumarkaði til þess að sinna hinu daglega lífi.
Ég vil að við spyrjum okkur reglulega hvort staðan sé ásættanleg. Á liðnum áratug hefur hið opinbera að mínu mati ekki stigið nægilega fast inn í stuðning við barnafjölskyldur. Raunverulegur stuðningur t.d. vegna aukinna útgjalda mætti sannarlega vera meiri. Fjárhagslegur stuðningur getur skipt sköpum til þess að auðvelda foreldrum að sinna börnum sínum og sinna fjölskyldunni. Jafnréttisbaráttan hefur verið gríðarlega mikilvæg til að þrýsta á framþróun, m.a. í tengslum við fæðingarorlof og að báðir foreldrar hafi tækifæri til þess að nýta orlof til samveru með börnum sínum. Það er sérstaklega mikilvægt að tryggja möguleika á aukinni þátttöku karla við uppeldi barna sinna. Sameiginleg er ábyrgð beggja sambúðaraðila við rekstur fjölskyldunnar. Það er auk þess mikilvægt að tryggja atvinnuþátttöku foreldra og afar mikilvægt að vinna áfram að jöfnun launa.
Nú er komin ríkisstjórn sem er tilbúin að afla tekna, reka ríkissjóð hallalausan en á sama tíma tryggja réttláta forgangsröðun fjármagns til þeirra sem þurfa á stuðningi að halda. Samfélagið í heild sinni þarf að taka höndum saman og styðja sérstaklega við barnafjölskyldur.