157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Staða barnafjölskyldna.

[14:57]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V):

Virðulegi forseti. Ef við ætlum að byggja gæðasamfélag fyrir fjölskyldur landsins verðum við fyrst og fremst að horfa til grunnstoðanna. Þar vegur efnahagslegur stöðugleiki þyngst. Án hans veikjast allar aðrar stoðir, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, húsnæðiskerfi og félagslegt öryggisnet. Á undanförnum árum hefur hallarekstur hins opinbera haft raunverulegar afleiðingar, ekki aðeins í bókhaldslegum skilningi heldur í beinum áhrifum á líf fjölskyldna. Hærri vextir, meiri verðbólga og aukinn vaxtakostnaður ríkissjóðs þýðir einfaldlega minna svigrúm til að fjárfesta þar sem þörfin er mest. Það er kjarninn í þeirri stefnu sem hér er lögð áhersla á, að snúa forgangsröðuninni við. Það er verkefni núverandi ríkisstjórnar.

Forseti. Hver króna sem fer í vaxtagreiðslur vegna uppsafnaðs halla er króna sem er hvorki í þjónustu íbúa landsins né í uppbyggingu innviða. Hún fer ekki í að stytta biðlista, efla snemmtæka íhlutun eða tryggja jafnræði í þjónustu óháð búsetu. Þess vegna er efnahagsleg ábyrgð ekki aðeins fjármálalegt markmið, hún er fjölskyldumál. Með aðgerðum ríkisstjórnarinnar í þeim stöðugleika sem hún hefur skapað í efnahagsumhverfinu, ásamt því að greiða niður skuldir, fer raunverulega meira fé í geðheilbrigðismál, í menntakerfið, í viðhald og uppbyggingu innviða sem halda samfélaginu okkar gangandi. Slík fjárfesting skilar sér margfalt til baka í betri lífsgæðum, meiri atvinnuþátttöku og sterkari framtíð barnanna okkar.

Virðulegur forseti. Gæðasamfélag verður ekki byggt á lánsfé til lengdar. Það verður byggt á ábyrgri hagstjórn, stöðugleika og skýrri forgangsröðun þar sem fjármunir fara fyrst og fremst í fólk, þjónustu og innviði, ekki í vaxandi vaxtareikning ríkissjóðs. Forgangsröðum fyrir fjölskylduna og þá grunneiningu sem allt okkar samfélag byggist á.