157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Staða barnafjölskyldna.

[15:01]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Herra forseti. Einstaklingurinn og fjölskyldan eru grunneiningar samfélagsins. Þegar við skoðum stöðu barna þarf sérstaklega að hlúa að barnafjölskyldum sem búa við efnahagslegar þrengingar. Samkvæmt flestum rannsóknum síðastliðin ár er áætlað að á milli 11–13% barna á Íslandi búi við fátækt. Það þýðir að eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi búi við fátækt. Rannsóknir sýna einnig að börn einstæðra foreldra, börn af erlendum uppruna, börn sem búa í leiguhúsnæði og börn á heimili foreldris með örorku eru líklegust til þess að búa við fátækt. Auk þess hefur þó nokkur hluti launafólks ekki fjárhagslegt svigrúm til að greiða grunnþætti fyrir börnin sín. Samkvæmt áðurnefndum rannsóknum hefur um fimmtungur foreldra ekki tök á að greiða kostnað við að halda afmæli eða veislur fyrir barnið sitt vegna fjárskorts á undanliðnum 12 mánuðum. Skortur á tómstundum er einn helsti þátturinn í efnahagslegum skorti barna á Íslandi. Þessi þáttur jókst eftir efnahagshrunið, var 8% árið 2009 en um 17% árið 2018. Það er ljóst að mikið verk er að vinna til að tryggja að öll börn á Íslandi njóti jafnra tækifæra óháð efnahag foreldra. Með því að fjárfesta í aðgerðum til að draga úr fátækt barna sparar samfélagið til lengri tíma. Ef horft er til fjármuna er það börnunum og samfélaginu til heilla að stuðla að auknum jöfnuði og lífsgæðum barna.

Herra forseti. Mennta- og barnamálaráðherra skipaði stýrihóp í nóvember til að móta aðgerðir til að vinna gegn fátækt barna. Skipan stýrihópsins er í samræmi við tillögu ráðherra til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna. Hópurinn vinnur nú hörðum höndum að því að móta sértækar aðgerðir til að uppræta vítahring fátæktar. Markmiðið er að tryggja öllum börnum jöfn tækifæri óháð efnahag og félagslegri stöðu. Stýrihópurinn hefur leitað samráðs við grasrótarsamtök, fræðasamfélag og fleiri og reiknar með að skila af sér tillögum í vor.