157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Staða barnafjölskyldna.

[15:13]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum fyrir umræðuna. Við hæstv. ráðherra erum sammála um mikilvægi þess að ná niður vöxtum og verðbólgu fyrir fjölskyldurnar í landinu en þar hefur ríkisstjórninni ekki tekist nógu vel. Þetta var annars fín yfirferð hjá hæstv. ráðherra yfir ýmis útgjaldamál, sum betri en önnur, og hæstv. ráðherra gekk síðan sjálfur í þá gildru að vekja athygli á ábyrgð Flokks fólksins á stjórn Reykjavíkurborgar. En ég ætla ekki að festast í svörum hæstv. ráðherra og nýta heldur tímann í að fara yfir tillögur okkar Sjálfstæðismanna til að bæta stöðu barnafólks — lausnir.

Ég hef þegar lagt fram frumvarp um stighækkandi skattfrádrátt fyrir forráðamenn barna innan 16 ára aldurs. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason hefur sömuleiðis lagt fram frumvarp um skattfrádrátt vegna heimilishjálpar, m.a. vegna umönnunar barna, og frumvarp um afnám stimpilgjalds vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði. Það nýtist auðvitað öllum við fasteignakaup en þar horfum við sérstaklega til kostnaðar fyrir barnafjölskyldur sem þurfa stærra húsnæði. Ég get líka nefnt frumvarp hv. varaþingmanns Tryggva Mássonar um rýmkun á ráðstöfunarrétti séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán.

Að lokinni þessari umræðu mun ég síðan leggja fram tvö ný þingmál í nafni þingmanna Sjálfstæðisflokksins; annars vegar frumvarp um skattfrádrátt forráðamanna vegna tómstunda barna og hins vegar frumvarp um að fella niður virðisaukaskatt á allar barnavörur, vörur eins og bleiur, barnavagna, barnabílstóla og barnaföt. Við Sjálfstæðismenn viljum létta undir með barnafjölskyldum með því að lækka skatta og skilja meira eftir í vösum þeirra. Við teljum að fjölskyldan sé hornsteinn hvers samfélags og sýnum það í verki með aðgerðum sem munar um. Skattar eru of háir á barnafjölskyldur. Með þessum aðgerðum tryggjum við stuðning við þær með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti.