157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

Staða barnafjölskyldna.

[15:16]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka þakkir mínar til hv. þm. Diljár Mist Einarsdóttur fyrir þessa umræðu. Ég ítreka að stærstu hagsmunamál fjölskyldna og almennings í þessu landi eru húsnæðismálin. Þetta hefur verið einn helsti drifkraftur verðbólgu og þar af leiðandi hárra vaxta síðustu ára og áratuga. Allar aðgerðir sem snúa að því að ná jafnvægi til lengri tíma á húsnæðismarkaði er langstærsta kjaramál samtímans og þá sérstaklega fyrir fjölskyldufólk.

Hér hafa komið margar spurningar og margar hugmyndir og mér gefst klárlega ekki tími til að bregðast við þeim öllum. Þingmenn hafa rætt um launabilið, leikskólamálin, fæðingarorlofið, matarskatt, tómstundastyrki. Það er í gangi og verður birt fljótlega aðgerðaáætlun gegn ofbeldi til að bregðast við einhverjum þáttum, en allt eru þetta góðar tillögur og góðar hugmyndir sem eru allar þess verðar að skoða gaumgæfilega.

Nánar um tillögur Sjálfstæðisflokksins, sem eru góðra gjalda verðar, komu hér í seinni ræðu hv. þingmanns. Í fyrri ræðu vísaði hv. þingmaður í tillögur flokksins við 2. umræðu fjárlaga en ég get ekki séð hvernig sala ríkiseigna eins og Landsbankans, Landsvirkjunar, Isavia og fleiri ríkiseigna, eða það að leggja niður Neytendastofu og minnka álögur á fyrirtæki, hjálpi barnafjölskyldum sérstaklega. Ég held að það fari betur á því að halda stefnu ríkisstjórnarinnar um að ná jafnvægi til lengri tíma í ríkisrekstri, hallalausum fjárlögum — og uppgjör ÍL-sjóðs sem var klárað og fleiri mikilvæg mál hafa gert það að verkum að lánshæfismat ríkisins var hækkað í gær sem mun síðan væntanlega hafa þau áhrif að fjármagnskostnaður ríkisins lækkar vonandi í kjölfarið þannig að ég held að við séum á ágætisleið. En auðvitað má alltaf gera betur og ég kem vel nestaður úr þessari umræðu og þakka fyrir hana. — Ég hef lokið máli mínu.