útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina á nefndarálitinu og mig langar til að taka undir margt af því sem kemur fram í þessu nefndaráliti og þá sérstaklega þegar við erum að tala um þennan skýrleika sem snýr að því um hvers konar brot er verið að ræða sem geta leitt til afturköllunar alþjóðlegrar verndar. Það virðist vera ljóst að það þurfi að vera skýrt. Í álitinu koma fram brot eins og morð, brot tengd skipulagðri glæpastarfsemi, alvarleg kynferðisbrot o.s.frv. Ég verð að spyrja hv. þingmann: Telur hv. þingmaður að það að nefna slík dæmi til að skerpa á þessum þætti sé takmarkandi að einhverju leyti eða hvers vegna telur hv. þingmaður að meiri hlutinn sé ekki tilbúinn til að skerpa á þessum mikilvæga þætti sem virðist vera mikilvægur út frá því að hafa skýrleika laganna í lagi?