157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

tenging launavísitölu við bætur almannatrygginga.

[15:09]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér kemur hæstv. forsætisráðherra og hvetur okkur til að lesa greinargerð þessa máls. Það hafa allir gert og enn og aftur kemur forsætisráðherra og er eini hagfræðingur þessa lands sem hefur rétt fyrir sér í þessu máli. Allir aðrir hagfræðingar eru að misskilja málið. Hvers vegna er þá vilji löggjafans ekki gerður skýr í frumvarpstextanum? Það er flestum ljóst að ákvæði laganna samkvæmt orðanna hljóðan tryggja ekki að hinn tvöfaldi lás jafnist út, sama hvað segir í greinargerð þessa frumvarps. Hvaða feluleikur er þetta, virðulegi forseti? Er þetta ekki bara merki um samstöðuleysi þessarar ríkisstjórnar?

Ég vil einnig fá að taka hér fram að þótt Seðlabankinn skrifi ekki lög er það samt sem áður á ábyrgð Seðlabankans að halda verðbólgu niðri í landinu. Þegar gera á alvarlegar breytingar og setja ríkisfjármálin á sjálfstýringu, í sjálfvirkan útgjaldavöxt, þá hefur það vitaskuld áhrif á verðbólguvæntingar. Þá á Seðlabankinn (Forseti hringir.) erindi og þá á ríkisstjórnin að hlusta á Seðlabankann.