staða Landspítalans.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir spurninguna. Það er gott að hún hlýddi á viðtalið á Sprengisandi því að það er algjörlega ljóst hver rót vandans er, sem er allt of hæg uppbygging hjúkrunarrýma langt aftur í tímann. Staðan fór versnandi milli áranna 2019 og 2024. Þá fækkaði þeim þegar miðað er við fjölgun aldraðra nú. Þess vegna er auðvitað mikilvægast að ráðast að þeirri rót. Vandinn er ekki að Landspítalinn ráði ekki við aðra þjónustu. Það er alveg rétt að það kom tilboð frá Klíníkinni og ég er ekki alveg 100% viss um það en ég held nú að Landspítalinn hafi áður farið í skoðunarferð þannig að ég þori ekki alveg að segja nákvæmlega hvaðan frumkvæðið kom. Lög gera ráð fyrir að Landspítalinn geti útvistað hluta af sinni þjónustu og samið um hana sjálfur en þarf auðvitað leyfi ráðherra og fjármögnun. Málin stóðu því þannig. Síðan er auðvitað búið að taka á þessu snúning og niðurstaðan er sú að það sem gagnast spítalanum best eru einmitt biðrými fyrir aldrað fólk. Þar er auðvitað gríðarlega margt í gangi en við þurfum að gæta þess að gera ekki bara eitthvað og tapa ekki yfirsýninni. Það þarf að ráðast að rótum vandans og rót vandans er skortur á úrræðum fyrir aldrað fólk. Það er vissulega búið að blása til stórsóknar síðan þessi ríkisstjórn tók við og í fyrsta skipti í fyrra snerist staðan þannig að við erum ekki lengur að lækka í fjölda hjúkrunarrýma fyrir aldraða heldur snerist staðan í fyrra. (Forseti hringir.)