157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

staða Landspítalans.

[15:24]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég hlýt að spyrja aftur hvað hæstv. ráðherra finnist um það að Landspítalanum sé í sjálfsvald sett að meta hvaða aðstoð hann þiggur frá sjálfstætt starfandi í þessum efnum. Það er auðvitað hlutverk hæstv. ráðherra að leggja einhverja stefnu í þessum efnum til framtíðar. Staðan á Landspítalanum er svo sannarlega ekki ný af nálinni, eins og hæstv. ráðherra nefnir, en það er tvennt í brennidepli; það er annars vegar þessi fráflæðisvandi en greinilega líka vanmáttug bráðaþjónusta. Hún kom líka til umræðu í þessum þætti. Menn hafa lengi spurt sig að því af hverju ýmis smáverk séu ekki flutt frá bráðamóttökunni. Á Sprengisandi svaraði hæstv. ráðherra því til að bráðamóttaka réði vel við þessi mál, þau smáverk væru ekki vandamál. Mér finnst þetta ankannaleg afstaða til málsins vegna þess að auðvitað íþyngja þessi mörgu smáverk bráðari tilfellum á bráðamóttökunni. Hæstv. ráðherra hlýtur að hafa einhverja framtíðarsýn í þessu (Forseti hringir.) aðra en, eins og kalla mætti einhverjar skítareddingar þegar allt er í óefni komið með samninga um legurými fyrir aldraða.