hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að eiga orðastað við hæstv. forsætisráðherra varðandi hagræðingar og hagræðingartillögur. Í þeirri fjármálaáætlun sem nú liggur fyrir, þó að við vitum það að önnur uppfærð er væntanlega á leiðinni, er ef ég man rétt gert ráð fyrir 107 milljarða kr. hagræðingu uppsafnað yfir tímabilið sem hæstv. ráðherra og ráðherrar hafa fullyrt að séu að fullu fjármagnaðar. Þrátt fyrir að hæstv. ráðherrar hafi ítrekað verið spurðir út í það með hvaða hætti þeir ætli að ná fram sinni hagræðingu hefur lítið orðið um svör og nánast ekki neitt. Ég man ekki eftir einum einasta ráðherra sem hefur komið inn í fjárlaganefnd og getað svarað fyrir það hvernig þessu aðhaldi eða þessari hagræðingu verði náð fram.
Nú erum við að tala hér um árið 2026 þar sem ég held að hagræðingarkrafan í frumvarpinu sé um 12,8 milljarðar. Þetta felst í því að fella niður verkefni og í betri nýtingu rammasamninga, forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu, aðhaldi hjá aðalskrifstofum ráðuneyta og fækkun stjórnsýslunefnda. Svolítið fugl í skógi, virðulegur forseti. Mig langar sem sagt að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í það hvernig gangi raunverulega að móta þessar hagræðingartillögur sem svo oft hefur verið talað um í þessum þingsal og hvernig það fari saman að auka útgjöld um 143 milljarða og skera niður um 15,1 á sama tíma og tala um aðhald. Er staðan ekki í raun og veru þannig, virðulegur forseti, að það var verið að hækka útgjöldin um 128 milljarða og ekkert aðhald?