hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svarið sem var býsna gott. Ég náði því reyndar ekki alveg en það er sennilega bara mér að kenna. Spurningin var í raun og veru um 143 milljarða kr. útgjaldaaukningu og 15 milljarða kr. hagræðingu og hvernig í raun væri hægt að tala um að það væru aðhaldssöm fjárlög, eins og hæstv. ríkisstjórnin hefur oft gert, hvort það stæðist í raun og veru skoðun. Það er hins vegar alveg hárrétt hjá hæstv. forsætisráðherra að launa- og verðlagsbætur eru hluti af þessum 143 milljörðum. Ef ég man tölurnar rétt, virðulegur forseti, held ég að þær nemi rétt rúmlega 40 milljörðum. Það eru því 100 milljarðar sem út af standa þegar launa- og verðlagsbætur eru teknar til hliðar.