hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Inni í þessari tölu er, eins og hv. þingmaður þekkir eflaust betur en ég, líka aukinn vaxtakostnaður vegna uppgjörs á ÍL-sjóði sem reyndar gerði það að verkum að heilt yfir, m.a. vegna ÍL-sjóðs og annarra þátta, hafa skuldir ríkissjóðs fallið á undanförnu ári. Þetta eru að hluta til bókhaldslegar stærðir. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að það er erfitt að draga úr útgjöldum. Við verðum að horfast í augu við það að við erum að reka hér samfélag og þegar við sjáum vöxt í nærumhverfi okkar þá fylgir því oft aukin þjónusta; þjónusta á vegum hins opinbera, vegir, skólar, heilbrigðisþjónusta og við sjáum kröfur um íslenskukunnáttu, kostnað vegna þess, við erum að sjá alls konar þætti sem hafa komið inn á undanförnum árum, t.d. hjúkrunarþyngd og öldrun þjóðar. En við ætlum vissulega að halda þessu í skefjum. Það er ástæðan fyrir því að við erum með mjög takmarkaðan ef einhvern raunvöxt útgjalda milli ára fyrir árið 2027 og það mun vera áskorun. Engu að síður (Forseti hringir.) munum við standa við það að við ætlum að skila afkomunni réttum megin við núllið fyrir næsta ár.