aðgerðir vegna stöðu á bráðamóttöku Landspítalans.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir spurninguna sem er af sama meiði og spurning hv. þm. Sigríðar Andersen. Röksemdin gegn þessu er sú að þetta er ekki vandi bráðamóttökunnar. Bráðamóttakan ræður prýðilega við slysamóttöku og eins og ég nefndi áðan hefur þessum minni háttar tilvikum fækkað um 25% með markvissri vinnu og komum á bráðamóttöku hefur ekki fjölgað þó að fólki fjölgi og það verði eldra. Ég bara endurtek það að alltaf þegar maður er að leysa vandamál þá fer maður í rót vandans og hún er í þessu tilviki skortur á rýmum fyrir aldraða. Við sjáum þó fram á betri tíma þar. Það eru að opna ný rými í Urðarhvarfi og aukinheldur hefur heilbrigðisráðuneytið unnið í því að finna rými hér og þar og þau eru ansi mörg komin á teikniborðið. Ég endurtek það að ef á að fara að skipta upp bráðamóttöku þá er þessi hætta fyrir hendi af því bráðalæknar eru ekkert of margir hér. Það er loksins búið að manna bráðamóttökuna, bæði af hjúkrunarfræðingum og læknum, en slík var staðan ekki bara fyrir örfáum árum. Þess vegna finnst mér svo mikilvægt að bráðamóttakan fái að þróa sig og við förum ekki að ráðast í röng verkefni. Ég hef fulla trú á því núna þegar allt er komið á fullt, bæði við að byggja upp hjúkrunarrými og að finna rými til bráðabirgða, að staðan vænkist. Við höfum séð það áður þegar þjónusta fór út af Landspítala að það gróf undan þeirri þjónustu sem fyrir var (Forseti hringir.) vegna þess að sérfræðingar fóru með og það viljum við forðast. En aftur: Það er stutt síðan tekinn var snúningur á þessu og örugglega kemur að því aftur en það er ekki vandinn í dag.