157. löggjafarþing — 70. fundur,  16. feb. 2026.

aðgerðir vegna stöðu á bráðamóttöku Landspítalans.

[15:39]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Mér fannst spurningu minni ekki fullsvarað um raunverulegt viðhorf hæstv. ráðherra til þess að fela einkaaðilum eða sjálfstætt starfandi aðilum í heilbrigðisþjónustu fleiri verkefni en nú er, eins og á bráðamóttökunni. Ég nefndi líka sérstaklega bráðadeild fyrir aldraða sem tíðkast á öðrum Norðurlöndum og væri gott að fá viðhorf ráðherrans til þess því eins og ég sagði í fyrri ræðu minni, og við þekkjum mörg og vitum, koma margir aldraðir einmitt á bráðamóttökuna vegna vandamála og veikinda sem tengjast beint þeirra öldrun en eru kannski ekki í bráðri hættu. Ég óska því líka eftir viðhorfum til þess og eins til þeirra viðbragða sem frumvarp um sjúkratryggingar er að fá, þar sem sjálfstætt starfandi aðilar í heilbrigðisgeiranum, læknar, sjúkraþjálfarar, tannlæknar og ljósmæður segja hreinlega að ef breytingarnar verði að veruleika séu þær (Forseti hringir.) aðför að heilbrigðisþjónustunni og sjálfstætt starfandi starfsemi, en það eru 2300 einstaklingar (Forseti hringir.) sem leita til sérfræðilækna á dag.