Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Í síðustu viku stóðu stúdentar við Háskóla Íslands fyrir mótmælum vegna fyrirhugaðrar hækkunar á skrásetningargjöldum við skólann sem hafa nú raungerst. Ég er, eins og rúmlega 13.000 aðrir, nemandi við Háskóla Íslands. Því að stunda nám við opinberan háskóla á Íslandi fylgir að greiða skrásetningargjöld, sem hafa undanfarin ár verið 75.000 kr., en núna í sumar munu nemendur við háskólann þurfa að greiða 100.000 kr. til að stunda nám við hann. Umræðan um skrásetningargjöld við opinbera háskóla er hluti af mun stærri umræðu og mun stærra vandamáli sem er fjármögnun háskólastigsins og fjárhagsleg staða stúdenta. Meðalútgjöld á hvern ársnema í háskóla á Íslandi árið 2022 voru þriðjungi lægri en meðaltal Norðurlandanna. Á sama tíma greiða nemendur við háskóla á Norðurlöndum lítil sem engin skrásetningargjöld til að stunda nám við opinbera háskóla þarlendis.
Opinberir háskólar og stuðningskerfi við íslenska stúdenta hafa um árabil verið vanfjármögnuð og vanrækt. Jákvæð skref hafa verið tekin í átt að betri stuðningi við stúdenta með breytingum á lögum um Menntasjóð námsmanna og veit ég að fleiri jákvæðar breytingar eru í farvatninu. Það er mín sýn að við getum gengið lengra, stutt betur við stúdenta og við opinbera háskóla með það að markmiði að gera háskólanám á Íslandi raunhæfan valkost fyrir öll og tryggja sterka og samkeppnishæfa opinbera háskóla. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)