Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er þetta með störf þingsins hér, þau hafa verið svona upp og ofan undanfarna daga. Í gær var boðað til fundar fram til miðnættis þrátt fyrir að það lægi fyrir að á þriðjudögum, á degi eins og þessum, er alla jafna hægt að funda til miðnættis. En í gær var boðað til lengri þingfundar af í raun afar litlu tilefni að því er virtist, vegna umræðu um mál sem hefði alla jafna mátt bíða afgreiðslu eða umræðu þangað til í dag. Ég til að mynda tók þátt í umræðu ein þingmanna um mál sem voru hér neðarlega á dagskránni í gær. Það voru engar umræður um mál sem voru neðarlega á dagskrá og hefðu að ósekju mátt bíða til dagsins í dag. En gott og vel, þingfundi lauk ágætlega í gær og með lyktum 2. umræðu ýmissa mála sem var svo sem alveg ágætt. En þá ber svo við að í dag er sett á dagskrá hér mál sem er í rauninni eina málið sem kannski fær einhverja efnislega umræðu í 2. umræðu, mál er varðar grásleppu. Það er eina dagskrármálið ef undan eru skilin kannski mál um Grindavík sem allir hér eru sammála um að þurfi að samþykkja hratt og örugglega og litlar umræður verða um á eftir. En þá er sett á dagskrá grásleppumál, þingmannamál sem öllum má ljóst vera að orkar tvímælis.
Ég vissi ekki betur, virðulegur forseti, en að það hefði verið sátt um það í hv. atvinnuveganefnd að þetta mál biði frekari umræðu þar til fyrir lægi álit frá m.a. Lagastofnun sem engin andmæli komu fram um í hv. atvinnuveganefnd að óska eftir. Það álit liggur ekki fyrir en allt að einu er þessu máli nú hent hér fram og án nokkurs samráðs við þingflokksformenn. Ég geri athugasemdir við þetta, virðulegur forseti.