157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Enn og aftur vekja vinnubrögð meiri hlutans í hv. atvinnuveganefnd athygli, nú vegna óvenjulegs þingmannafrumvarps um að færa grásleppu til baka úr aflamarkskerfinu yfir í gamla dagakerfið, sem er stefnumarkandi hvað fiskveiðistjórnarkerfið varðar. Af hverju er þetta óvenjulegt frumvarp? Einfaldlega vegna þess að ríkisstjórnin lætur það viðgangast að þingmaður Flokks fólksins rífi upp úr skjóðu sinni frumvarp sem gengur út á það að breyta veiðistjórn í grásleppu. Slík stefnubreyting á auðvitað að vera í höndum ríkisstjórnarinnar.

Frú forseti. Á hvaða leið er þessi ríkisstjórn sem getur ekki kannast við eigin gjörðir og felur þær á þennan hátt? Svo hart er gengið fram í hv. atvinnuveganefnd að ekki má lengur spyrja Lagastofnun háskólans um lagalegar afleiðingar af þessari breytingu þótt því hafi verið lofað. Það eitt að leita ekki eftir áliti lagasérfræðinga og hunsa það að láta kanna hugsanleg lagaleg áhrif þessa frumvarps getur haft afdrifaríkar afleiðingar, frú forseti, ekki hvað síst í hugsanlegum bótamálum fyrir dómstólum síðar meir.

Frú forseti. Þessi vinnubrögð atvinnuveganefndar og ríkisstjórnarinnar eru óvönduð, ófagleg og ekki forsvaranleg. Þau segja allt sem segja þarf um stöðu ríkisstjórnarsamstarfsins.