Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ísland er ríki sem byggir afkomu sína á alþjóðlegum viðskiptum og samvinnu. Með EES-samningnum höfum við átt farsælan feril og aðgang að innri markaði Evrópu sem hefur fært okkur farsæld og styrkt okkar velferð. Um það er ekki deilt. Kostir þess að Evrópa standi saman sýndi sig þegar yfirtöku á Grænlandi var hótað en EES-samningurinn veitir okkur ekki sæti við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar. Full aðild að ESB myndi breyta því. Við fengjum atkvæðisrétt í ráðinu, fulla þátttöku á Evrópuþinginu og möguleika á því að hafa áhrif á málefni sem snerta okkur beint. En til þess að taka upplýsta ákvörðun þurfum við að vita hvað er í boði, hvers konar samningur verður lagður fram, hvaða undanþágur, aðlögun, réttindi og skuldbindingar fylgja fullri aðild. Aðeins þegar sá samningur liggur fyrir getum við tekið endanlega afstöðu til þess hvort við viljum ganga inn í Evrópusambandið eða ekki.
Virðulegur forseti. Í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að kjósa skuli um hvort halda eigi áfram með aðildarviðræður að ESB. Viðreisn treystir íslensku þjóðinni til að taka upplýsta ákvörðun. Við teljum að fólk sé fullfært um að meta kosti og galla á grundvelli staðreynda en ekki hræðsluáróðurs. Ég vona innilega að umræðan í aðdraganda þeirra kosninga verði málefnaleg þannig að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun þegar að kosningum kemur.