Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég kem úr samfélagi á Austurlandi þar sem áhrif þeirra ákvarðana sem hér eru teknar verða fljótt sýnileg í daglegu lífi fólks. Það sést skýrt hvernig stefnumótun, atvinnulíf og þjónusta haldast í hendur og hvernig ákvarðanir á landsvísu móta raunveruleg tækifæri fólks til að byggja framtíð sína, búa og starfa. Í mínum störfum hef ég fengið að sjá af eigin raun hversu náin tengsl eru milli verðmætasköpunar, nýsköpunar og lífsgæða í samfélögum. Þegar skapaðar eru forsendur fyrir verðmætasköpun og framþróun styrkist ekki aðeins atvinnulífið heldur einnig samfélagið sjálft, fjölskyldur, skólar og sú grunnþjónusta sem þarf að vera til staðar svo fólk geti valið að byggja sér líf þar sem það kýs. Á landsbyggðinni býr mikill kraftur og þar eru veruleg tækifæri. Þar eru hugmyndir, þekking og frumkvæði sem skapa verðmæti fyrir landið allt en til þess þarf stöðugt og sanngjarnt umhverfi þar sem þessi kraftur fær að vaxa og dafna. Sterk landsbyggð er ekki sérmál þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins heldur sameiginlegt hagsmunamál þjóðarinnar. Þegar tækifæri skapast víða um land styrkist samfélagið allt, atvinnulíf, velferð og traust til þeirra kerfa sem við byggjum á. Jafnt aðgengi að traustum grunninnviðum á ekki að vera spurning um landshluta heldur um það hvernig samfélag við viljum byggja og hvaða tækifæri við viljum að standi öllum til boða. Það er okkar hér á Alþingi að tryggja að við nýtum auðlindir og þekkingu landsins af ábyrgð og að tækifæri fólks séu raunverulega óháð búsetu.