157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:41]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er sama hvert er litið þegar kemur að því hvernig við sem samfélag hugsum um þau sem höllum fæti standa í lífinu. Við höfum ekki verið að standa okkur vel og við erum ekki að standa okkur nógu vel. Við erum að tala um barnaverndarúrræði fyrir börn í mjög viðkvæmri stöðu. Við erum að tala um meðferðarúrræði fyrir ungt fólk. Við erum að tala um fangelsi landsins. Sögurnar birtast okkur nú sem aldrei fyrr og á bak við hverja sögu er fólk, alvörufólk sem á sér drauma og von um betri framtíð.

Það er af mörgu að taka nú um mundir en í þetta sinn langar mig að ræða nýútkomna eftirfylgniskýrslu frá ríkisendurskoðanda um fangelsismál sem birt var í gær. Tilgangurinn með eftirfylgni er að kanna hvort og þá hvernig brugðist hefur verið við ábendingum og tillögum Ríkisendurskoðunar í skýrslu sem kom út í nóvember 2023. Eftirfylgnin leiðir í ljós að af níu ábendingum er aðeins ein þeirra komin í lag. Hún snýr að menntun fangavarða. Það er ljóst að núverandi húsnæði á Litla-Hrauni er algerlega óboðlegt bæði föngum og starfsfólki og hraða þarf undirbúningi nýs fangelsis að Stóra-Hrauni. Móta þarf heildstæða endurhæfingarstefnu, bæta þarf stöðu kvenna í fangelsum og tryggja þarf heilbrigðisþjónustu og menntun fanga, svo eitthvað sé nefnt.

Virðulegi forseti. Það er ljóst að samhengi er á milli allra þessara þátta sem ég nefndi í upphafi. Ef við bregðumst börnum í vanda á meðan þau eru ung þá eru meiri líkur á að vandi þeirra vaxi og verði orðinn mjög stór á unglingsárum. Ef við bregðumst þeim líka þá er því miður mikil hætta á því að þau endi í fangelsum landsins. Ætlum við að halda áfram að bregðast þeim þar? Þetta er ekki vandi sem var að koma upp. Þetta er vandi sem hefur fengið að byggjast upp árum og áratugum saman og ljóst að hin margumtalaða innviðaskuld er líka risastór í fangelsum og full þörf á að fara yfir stöðu mála. Í haust óskaði ég eftir sérstakri umræðu um fangelsismál og ég biðla til virðulegs forseta um að koma henni á dagskrá við fyrsta tækifæri.