157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Mig langar til að vekja athygli hér núna á aukinni neyslu barna og ungmenna á orkudrykkjum. Fyrirtæki sem markaðssetja og selja þessa drykki maka krókinn. Samkvæmt nýlegri könnun Prósents styður mikill meiri hluti fólks í öllum aldursflokkum og stjórnmálaflokkum að bannað verði að selja börnum og ungmennum undir 18 ára aldri orkudrykki. 83% þeirra sem tóku afstöðu eru fylgjandi banni, 4% eru því andvíg og 13% taka ekki afstöðu.

Hvað eru orkudrykkir? Orkudrykkir eru hitaeiningasnauðir drykkir með hlutfallslega miklu koffíni. Flestir innihalda þar að auki önnur virk efni, svo sem ginseng eða útdrætti úr öðrum plöntum. Auk þess er algengt að þessir drykkir innihaldi mikið magn af vatnsleysanlegu vítamíni auk annarra efna sem líkaminn framleiðir og getur því verið varasamt að neyta í of miklu magni. Þessara drykkja er neytt með það að markmiði að ná fram örvandi áhrifum. Sumir drykkir með sama vöruheiti fást líka án viðbætts koffíns en innihalda þó oft viðbætt vítamín í miklu magni eða önnur efni sem geta verið skaðleg börnum. Flest þekkjum við áhrif mikils koffíns á líkamann. Koffín í orkudrykkjum er vanabindandi efni sem veldur m.a. útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Óæskileg áhrif of mikils koffíns eru höfuðverkur, svimi, ógleði og kvíði auk þess sem koffín hefur neikvæð áhrif á svefn. Börn og ungmenni eru almennt viðkvæmari fyrir koffíni en fullorðnir og er neysla barna á koffíni því sérstaklega óæskileg.

Frú forseti. Hér er á ferðinni hættuleg þróun, sérstaklega með tilliti til mikillar neyslu barna og unglinga á þessum drykkjum. Rannsóknir hafa sýnt að líðan barna hefur almennt farið versnandi. Kvíði og vanlíðan ungmenna hefur m.a. verið rakin til mikillar skjánotkunar og langs tíma á samfélagsmiðlum. Mikil neysla barna og ungmenna á orkudrykkjum er því síst til þess fallin að bæta líðan þeirra.