157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:48]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Frú forseti. Það eru líklega flestir sammála um að innviðir landsins eru komnir í óefni. Innviðaskuldin er gríðarleg. Hún birtist okkur daglega í holóttum vegum, hættulegum fjallvegum, ótryggum rafmagnstengingum, ófullnægjandi vetrarþjónustu, sígandi höfnum, vannýttum flugvöllum, óskilvirkum almenningssamgöngum og ótryggum sjóvörnum. Daglega heyri ég lýsingar á verkefnum og loforðum sem hafa tafist í áratugi. Allir landshlutar vilja meira fjármagn í framkvæmdir sem setið hafa á hakanum og allir vilja flýta þeim. Allir landshlutar sýna skilmerkilega fram á þörfina með sterkum rökum. Spurningin sem blasir því einfaldlega við er þessi: Hvernig endaði þetta svona? Hvernig á dæmið að ganga upp?

Raunveruleikinn er þessi: Innviðir hafa ekki fylgt hagvexti. Fjárfesting í samgöngum er einna minnst innan OECD á Íslandi og einungis 40% af þjóðvegakerfinu er í viðunandi ástandi. Hér er ég ekki einu sinni farin að ræða flutningsnetið og raforkuöryggið, hvað þá farnetið sem er algerlega í óviðunandi ástandi. Á sama tíma hefur ríkissjóður verið ósjálfbær um árabil með viðvarandi hallarekstri og þetta er risastór pólitísk áskorun. Í þessu samhengi er heldur ekki hægt að horfa fram hjá því að eitt flóknasta úrlausnarefni innviðauppbyggingar er fjármögnun hennar því að hver króna sem við borgum í vexti af láni er ekki borguð í nauðsynlega innviði.

Forseti. Innviðaskuldin er ekki náttúrulögmál heldur afleiðing ákvarðana eða öllu heldur skorts á þeim. Látum dæmið ganga upp. Hættum að fresta og tökum sameiginlega ábyrgð á því að fjármagna og framkvæma, skref fyrir skref. Það er ekki í boði að bíða betri tíma því frumforsenda betri tíma og byggðafestu um allt land eru sterkir innviðir.