Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Enn og aftur erum við að ræða viðbrögð við holdafari þjóðarinnar, sem nú er komið í ljós að er ekki nógu gott samkvæmt greiningum. Þá dúkkar enn og aftur upp sykurskatturinn svokallaði, óhollustuskatturinn, að hann sé ein af leiðunum til þess að ná einhverri stjórn á holdafari þjóðarinnar sem er víst of mikið. Ég hef í gegnum tíðina oft og mörgum sinnum varað við slíkri skattlagningu og nú síðast héðan úr þessum ræðustól í desember síðastliðnum þegar það lá í loftinu að þetta væri ein af aðgerðunum sem grípa ætti til til að reyna að ná tökum á þessari óæskilegu þróun.
Ég vil bara enn og aftur vara við því að grípa til aðgerða af þessu tagi. Ég vara við slíkri forræðishyggju, slíkri neyslustýringu sem í þessu felst. Það sem við vitum og nú er að koma fram og menn eru að benda á sem viðbrögð við þessu er að skattur af þessu tagi mun koma verst niður á þeim sem eru tekjulægstir. Varla er það ætlunin. Grípum frekar til aðgerða sem leiða til þess að sem flestir geti borðað svokallaða hollari vöru; ávexti og grænmeti og þetta sem er í rauninni mikið dýrara en sykurvörur. Grípum til slíkra aðgerða og hvetjum til holls mataræðis og hreyfingar og þess háttar. Notum forvarnaleiðina og fyrirbyggjandi aðgerðir. Hættum þessari forsjárhyggju. Heimilin og fyrirtækin í landinu eru komin með algjörlega upp í háls af hækkandi sköttum og aukinni skattheimtu. Ég segi bara: Nei, takk, við frekari sköttum á heimilin og fyrirtækin. Notum aðrar leiðir. Það er komið nóg af sköttum.