157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Árni Helgason (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að nota tækifærið hér í dag og fjalla aðeins um stöðu efnahagsmála. Ef það er eitthvert eitt markmið sem ég held að þingmenn á þessu þingi ættu að geta sammælst um þá er það markmiðið að lækka verðbólgu og skapa skilyrði til verulegrar vaxtalækkunar. Sennilega er fátt sem myndi gagnast fólkinu, fyrirtækjunum og heimilunum í landinu meira.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá því í desember 2024 segir einmitt um þetta atriði, með leyfi forseta: „Fyrsta verk er að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins.“

En hver er eiginlega staðan á þessu mikilvæga verkefni núna þegar tæpur þriðjungur kjörtímabilsins er liðinn? Þegar ríkisstjórnin tók við fyrir 14 mánuðum síðan var verðbólgan 4,8%. Í dag er hún 5,2%. Stýrivextir eru enn allt of háir og fyrir liggur að vaxtalækkunarferli Seðlabankans er komið á ís í bili. Atvinnuleysi hefur aukist upp á síðkastið. Fasteignamarkaðurinn er orðinn enn þyngri en hann var. Nýjar íbúðir seljast varla og afborganir af venjulegum íbúðalánum eru þannig að ungt fólk ræður engan veginn við þær. Þetta segir okkur að verkefnið er ekki að ganga sem skyldi, markmiðin eru ekki að nást. Nærtækasta skýringin er kannski einmitt falin í þessum orðum stjórnarsáttmálans sjálfs; það vantar styrkari stjórn á fjármálum ríkisins. Ágætisdæmi um þetta eru hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar sem voru kynntar í byrjun árs í fyrra. Nánast ekkert af þessum tillögum hefur komið til framkvæmda en það virðist hins vegar enginn skortur á tillögum í hina áttina, þ.e. á útgjaldahliðinni. Þannig nam útgjaldaaukning ríkissjóðs milli ára á fjárlögum 143 milljörðum kr. Illa útfært kílómetragjald og gjaldskrárhækkanir hins opinbera núna um áramótin hjálpuðu heldur ekki til og ýttu verðbólgunni enn frekar upp. Til stendur að tengja bætur við launavísitölu þvert á viðvaranir nánast allra þeirra sem hafa tjáð sig um málið, m.a. vegna þess að það geti valdið verðbólguþrýstingi.

Virðulegi forseti. Á sama tíma og ríkisstjórnin sendir þau skilaboð út í þjóðfélagið til fólks og fyrirtækja að þau eigi að rifa seglin, halda aftur af hækkunum og hagræða sig út úr vandanum, gengur auðvitað ekki upp að sama ríkisstjórn geri eitthvað allt annað sjálf. Ég hvet stjórnina til að herða róðurinn, (Forseti hringir.) skorast ekki undan erfiðum ákvörðunum og setja þetta verkefni í algjöran forgang.