157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Hagstjórn á Íslandi kallar á umtalsvert erlent vinnuafl. Umræðan færist því miður oft yfir í gagnrýni á fólkið sjálft þó að langflestir standi sig vel og við höfum sjálf opnað landið. Hraði fólksfjölgunar hefur hins vegar ekki verið sjálfbær. Hann hefur raskað jafnvægi og skapað sundurlyndi. Þúsundir fluttu til landsins árið 2025 umfram brottflutta líkt og árin á undan. Of mikill hraði hefur leitt til þenslu á húsnæðismarkaði og reynt á innviði heilbrigðisþjónustu og skólakerfis, innviði sem tekur langan tíma að byggja upp og íbúar treysta á að stjórnvöld sinni. Ef áfram á að byggja vöxt hagkerfisins á hröðum innflutningi vinnuafls þarf að fjárfesta mun meira í þáttum sem styrkja samheldni líkt og tungumáli. Vöxturinn sjálfur þarf líka að vera raunsær út frá innviðum og í takt við vilja íbúa, annars er hætt við að deilur aukist. Sá kostnaður birtist sjaldnast í hefðbundnum hagfræðilegum excel-útreikningum.

Í einu sveitarfélagi hitti ég ráðamann sem lýsti mikilli uppbyggingu. Hann benti stoltur á hótel sem ætti að skapa yfir 150 störf. Þegar ég spurði hvort það væri atvinnuleysi á staðnum svaraði hann neitandi en bætti við að flestir kæmu í störfin erlendis frá og að markmiðið væri einfaldlega að vera í sókn. Í samtölum við íbúa varð mér hins vegar fljótlega ljóst að hér takast á ólík sjónarmið, annars vegar metnaðarfull tekjustefna sveitarstjórnar og hins vegar áhyggjur íbúa sem óttuðust að verkefnin myndu breyta samfélaginu of hratt. Þeir voru ekki hluthafar í stækkandi fyrirtækjum og upplifðu að ávinningur af vextinum skilaði sér ekki endilega til samfélagsins.

Virðulegi forseti. Það nægir ekki fyrir stjórnmálamenn að kalla eftir auknum hagvexti og fleiri störfum eins og hægt er ef samtímis er ekki horft til heildaráhrifa. Þess vegna er nauðsynlegt að ræða af meiri alvöru hvernig við viljum sjá Ísland þróast og hvernig löggjöf styður við sett markmið. Hvað teljum við mikilvægt að varðveita í íslensku samfélagi og hvernig viljum við sjá sjálfbæra verðmætasköpun um allt land? Ef við mótum ekki framtíðarsýn okkar sjálf þá mótast framtíðin bara einhvern veginn.