Störf þingsins.
Frú forseti. Enn ein uppákoman varð í störfum atvinnuveganefndar í morgun. Þar mætti formaður nefndarinnar, hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir, með tillögu um að ákvörðun nefndarinnar frá því 3. febrúar síðastliðinn, um að óska lagalegrar úttektar Lagastofnunar, yrði dregin til baka. Meiri hlutinn mætti þarna og sagði eftir tvær vikur, þar sem við í minni hlutanum vissum ekki annað en að verið væri að undirbúa þessa beiðni til Lagastofnunar, að nú væri allt í plati. Meiri hlutinn ætlaði í skjóli atkvæðamagns að stöðva það verkefni að fá lagalegan grundvöll undir þetta mál og úttekt á honum.
Í 62. gr. starfsreglna fastanefnda, er kallast Beiðni hafnað, þar sem fjallað er um hluti er varða aðkeypta þjónustu, segir, með leyfi forseta:
„Telji nefndarmaður að tillögu sinni um sérfræðiaðstoð hafi verið ranglega hafnað eða hann getur ekki fellt sig við þann sem meiri hluti nefndar hyggst fela verkefnið er honum heimilt að skjóta málinu til forseta.“
Það geri ég hér með fyrir hönd minni hluta atvinnuveganefndar og óska eftir því að forseti hlutist til um það að þessi úttekt Lagastofnunar, sem var samþykkt á fundi nefndarinnar þann 3. febrúar síðastliðinn, verði framkvæmd.
Við í minni hlutanum vissum ekki fyrr en í morgun að það væru einhverjar mótbárur gagnvart því að sú vinna færi fram. Það er með algjörum ólíkindum að mál sem er jafn illa ígrundað, mál sem var undirorpið slíkum athugasemdum gesta, sérstaklega þeirra sem komu í seinni atrennu núna innan 2. umræðu, fái ekki þessa skoðun. Forseti getur auðvitað, svo ég ráðleggi nú mögulegar útfærslur, falið sérfræðingum Alþingis að vinna þessa úttekt ef einhverjir fyrirvarar eða vandkvæði eru á því fólgin að Lagastofnun Háskóla Íslands geri það. (Forseti hringir.)
En ég ítreka: Fyrir hönd minni hluta atvinnuveganefndar vísa ég málinu til forseta og reikna með að það verði ekki rætt hér á þingi fyrr en afstaða forseta liggur fyrir til þess máls og vona ég að það verði sem fyrst.