umræða um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að taka undir með kollegum mínum og hv. þingmönnum sem furða sig á vinnubrögðunum í hv. atvinnuveganefnd. Þeir sem hafa áhyggjur af því að hér sé talað í efsta stigi og einhverjar ýkjur séu hafðar uppi þegar verið er að tala um fordæmaleysi þá erum við hér þónokkur sem höfum starfað í þinginu lengur en þetta kjörtímabil. Sjálf stýrði ég tveimur nefndum á síðasta kjörtímabili og vann að hluta til hér í þinginu kjörtímabilið þar áður og þetta eru hreinlega fordæmalaus vinnubrögð (Gripið fram í.) sem öll virðast ganga út á það að mál séu ekki unnin nógu vel og upplýst fyllilega hér í þinginu. Mig langar bara til að hvetja hv. þingmenn, hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, til að rækja vinnu sína vel og vandlega og samviskusamlega. Það er ótrúlegt að verið sé að koma í veg fyrir m.a. gestakomur, það eru alltaf álit eða gestakomur frá hinum og þessum aðilum, þegar blasir við að um er að ræða gesti og álit sem gætu skipt sköpum fyrir afgreiðslu viðkomandi þingmála.