niðurstaða vegna umræðu um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Mig langar til að spyrjast fyrir um hvernig mál standa er varða ósk minni hluta atvinnuveganefndar sem sett var fram hér við upphaf þingfundar. Hún hefur í tvígang verið sett fram munnlega og síðan skriflega. Það skiptir máli upp á framvindu starfa þingsins hér í dag hvernig á þessum málum verður haldið og hver afstaða hæstv. forseta verður til þeirrar beiðni sem komin er fram. Ég sá að hæstv. forseti var hér í salnum rétt áðan, vafalaust að taka þátt í atkvæðagreiðslu. En ég bara vil óska eftir því að virðulegur forseti forvitnist um það hvenær von er á að forseti úrskurði í þessum efnum, því að framhald umræðunnar mun vafalaust taka mið af því hver niðurstaða þess úrskurðar verður, sem ég hef nú von um að verði raunin á grundvelli 62. gr., 2. gr. starfsreglna fastanefnda.