157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

niðurstaða vegna umræðu um veiðistjórn grásleppu.

[17:05]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er svo sem jákvætt skref sem hefur verið tekið, að málið sé komið í formlegt ferli sem hefur verið hér til umræðu um fundarstjórn forseta, þ.e. að forseti hlutist til um afgreiðslu hv. atvinnuveganefndar að beiðni þingmanna minni hlutans um að leita eftir faglegu áliti Lagastofnunar Háskóla Íslands um málið er varðar grásleppu. Það er reyndar með svolitlum ólíkindum að það hafi þurft að ítreka sérstaklega við forseta ósk um að úrskurða í þessu máli af því að það er skýrt í starfsreglum fastanefnda að það er forseti sem úrskurðar þegar svo háttar til að þingmanni er neitað um sérfræðiaðstoð. Það liggur fyrir og lá fyrir með formlegum hætti í morgun að formaður hv. atvinnuveganefndar dró til baka beiðni sem senda átti Lagastofnun. Það er bagalegt að það hafi verið gert. (Forseti hringir.) En ég myndi telja, virðulegur forseti, að það væri ástæða til að gera aftur hlé á þingfundi til að upplýsa þingflokksformenn um málið og hvar í farveginum það liggur í dag.