úrskurður forseta.
Frú forseti. Frú forseti hefur fellt úrskurð sinn og við hlítum því auðvitað. Hins vegar er alveg ljóst að þessi regla sem hefur verið lesin upp hér í dag, um að skjóta þessum ágreiningi úr nefndinni til forseta, er náttúrlega einskis virði. Best væri að afnema hana úr þessum reglum, held ég, miðað við málatilbúnaðinn hér í dag. Þar segir að hægt sé að beina þessu til forseta en hún úrskurðar svona, eins og hún er búin að gera, og þá er þessi regla einskis virði, frú forseti, einskis virði og ber að henda henni út úr þessum reglum.
Hitt er svo annað mál, og miklu alvarlegra, að það fáist ekki lagalegt álit Lagastofnunar um það hvort það þingmannafrumvarp sem hér er til umræðu standist stjórnarskrá. Það er alvarlegi hluturinn í þessu máli. Af hverju er ríkisstjórninni svo mikið í mun (Forseti hringir.) að koma þessu máli áfram, máli Flokks fólksins, að hinir flokkarnir láti sér lynda að það sé hunsað að leita álits lögspekinga um það?