meðferð máls og úrskurður forseta.
Virðulegur forseti. Það má lengi ræða úrskurð forseta sem féll hér fyrr í dag. Ég hef nefnt það hér að það var vísað í þeim úrskurði til eldri úrskurða og ég nefndi það að þeir væru að einhverju leyti ekki sambærilegir. Það sem helst greinir þennan nýja úrskurð og það mál frá eldri málum sem hefur verið felldur úrskurður um af hálfu forseta er að í þessu máli hafði hv. atvinnuveganefnd samþykkt að leita álits Lagastofnunar og hafin var vinna sem var lokið af hálfu skrifstofu Alþingis og nefndasviðs. Það var búið að forma fyrirspurnir og spurningar til Lagastofnunar og það átti bara eftir að senda það út. Umræðu um málið var frestað fyrir tveimur vikum til að vinna þetta.
Svo gerist það án þess að það hafi verið útskýrt hér í allan dag að hv. atvinnuveganefnd dregur beiðnina til baka. Það er það furðulega í málinu og því hefur ekki verið svarað hvað það er sem menn óttast í þessari fyrirspurn. Hvað er það sem menn hafa að fela? Af hverju er þessi málsmeðferð með þessum hætti? Það er það sem þingið þarf að svara og það er bagalegt að forseti hafi ekki treyst sér til þess að úrskurða í málinu, af eða á.