meðferð máls og úrskurður forseta.
Virðulegur forseti. Það sást nú á atkvæðagreiðslunni hér á undan að þegar málin eru svona þokkalega unnin þá ganga þau þokkalega fyrir sig og klárast hér í sátt. Ég held að heilsugæslan hafi ekki komið, það hefur þá verið algjörlega í lokin í því máli, en það er verið að færa verkefni til hennar þannig að það hefði kannski átt að koma í upphafi til að vita hvað við ætti. En því er nefnilega allt öðruvísi farið með það mál sem við erum búin að vera að ræða hér í dag. Það eina sem stjórnarmeirihlutinn hefur getað sagt okkur hér í dag er hvað þau séu góð í að skrifa greinargerð en þau hafa ekki enn þá fengið neinn til að staðfesta að greinargerðin sé rétt. Enginn umsagnaraðili eða gestir. Frekar voru gestirnir að hvetja til þess að fengið yrði lagalegt álit á þessu, þeir hvöttu til þess. Því þorir stjórnarmeirihlutinn ekki í þingmannamálinu sínu og hann ætlar bara að keyra þetta í gegn (Forseti hringir.) og við hin eigum bara að taka afleiðingunum, hverjar sem þær verða, eins og í öllum öðrum málum frá þessari ríkisstjórn.