157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[18:40]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Við erum í vanda stödd út af þessu máli. Eins og ítrekað hefur komið fram þá höfum við þau ráð frá færustu sérfræðingum á þessu sviði að það sé mjög mikilvægt að leitað sé álits lögfróðra aðila vegna grundvallarágreinings í málinu. Nú hef ég í framhaldi af því sem ég kom inn á áðan sent spurningar sem snúa að þessu máli til hv. atvinnuveganefndar sem við í minni hlutanum óskum eftir að verði sendar til ráðuneytisins, svör við þeim geta kannski glöggvað sýn okkar á það. Ég legg áherslu á það, virðulegur forseti, að við þessari beiðni okkar verði orðið. Það er hægt að gera það skriflega þannig að það sé með samþykki meiri hlutans. Þá væri hægt að setja þá vinnu strax af stað og ráðuneytinu ber að vinna hratt og vel í þeim málum. Á meðan ítreka ég þá beiðni okkar um að málið verði ekki tekið (Forseti hringir.) hér til umræðu vegna þess að hér er um að ræða spurningar sem snúa að grundvallarréttindum fólks í landinu.