meðferð máls og úrskurður forseta.
Virðulegur forseti. Það sem hefur verið að þvælast fyrir hv. meiri hluta Alþingis er allt þetta fólk úti í bæ. Það eru sérfræðingar og hagsmunasamtök og hagfræðingar sem eru að koma hér með alls konar umsagnir, sem eru að benda á að verðbólga gæti hækkað. Jú, reyndar hækkaði verðbólgan en það var ekkert tekið mark á því. Núna eru alls konar sérfræðingar úti í bæ, hagfræðingar, Seðlabankinn, fjármálaráðuneytið og fleiri sem koma með alls konar svona leiðinlegar fortölur um þessi góðu frumvörp Flokks fólksins. Það er bara eitthvert fólk úti í bæ, við skulum ekki taka mark á því frekar en fyrri daginn. En núna held ég að hv. meiri hluti sé búinn að finna lausnina. Það er bara að taka ekki inn sérfræðingana, að fá ekki sérfræðiálit. Þá verður þetta allt miklu betra, það verður allt betra ef við fáum ekki sérfræðingana til að koma og segja sitt álit á þessum misgjörningum sem eiga sér stað hérna.