meðferð máls og úrskurður forseta.
Virðulegur forseti. Það hefur verið gaman að fylgjast með ferðalagi hv. stjórnarandstöðu í gegnum daginn. Fyrst var gerð athugasemd við dagskrána. Síðan var óskað eftir fundarhléi. Síðan var gerð athugasemd við það hvenær fundarhléið ætti að vera. Síðan var óskað eftir úrskurði. Síðan var gert fundarhlé á meðan úrskurður féll og síðan erum við komin í svona viðtöl eftir leik þar sem fólk er að melta úrskurðinn sem átti sér stað. Reyndar í millitíðinni tókst hv. þm. Bergþóri Ólasyni að koma hér upp og spyrja hæstv. forseta hvort hún hefði einhverjar frekari hugmyndir um hvað hún gæti gert í málinu, til að reyna að dreifa málinu enn frekar á dreif. En ég segi þetta nú reyndar af fullri virðingu fyrir hv. stjórnarandstöðu því að ég ber mikla virðingu fyrir hennar störfum og þeim sem hér eru og ég skil hvert fólk er að fara. En mín persónulega skoðun er sú að við höfum ekki endilega nýtt tímann mjög vel í dag. Það er mjög margt hér sem hefði mátt ræða og jafnvel af meiri dýpt heldur en öll þessi atriði sem ég hef hér talið upp. En ég hlakka auðvitað til að eyða restinni af deginum og kvöldinu með hv. þingmönnum stjórnar og stjórnarandstöðu.