157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[18:46]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að koma hér upp aftur og ítreka undrun mína á niðurstöðu forseta varðandi það mál sem við óskuðum eftir að forseti myndi leiðbeina okkur með og úrskurða um. Ég tek undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen þar sem ég er sammála því að það er stigsmunur á hvort nefnd hafi samþykkt skýrslubeiðni eða ekki og dragi það síðan til baka. Það hlýtur hver heilvita maður að sjá að þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð. Nefndin var búin að samþykkja beiðni minni hlutans um að fá álit Lagastofnunar. Síðan líða tvær vikur eða þar um bil og skyndilega í morgun ákveður meiri hluti nefndarinnar að draga þessa beiðni til baka. Ég ætla bara að fá að varpa þeirri spurningu fram: Hvað er það í ósköpunum sem meiri hlutinn óttast svona mikið við að fá fleiri sjónarmið (Forseti hringir.) um þau vonlausu mál sem ríkisstjórnin dregur hér upp úr hatti sínum á hverjum degi?