157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[18:47]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég nefndi það í upphafi þingfundar í dag að þetta væri orðið ákveðið einkenni á málsmeðferð mála stjórnarinnar, þ.e. bara mála frá Flokki fólksins. Öll afgreiðsla þeirra mála hefur einhvern veginn yfir sér yfirbragð ómálefnalegra sjónarmiða. Vinnubrögð í nefndum hafa verið ómálefnaleg nánast við hvert einasta mál sem Flokkur fólksins ber hér fram, hvert einasta mál. Subbulegt mætti stundum orða það til að lýsa sumum málum sem hafa farið í gegn. Hér hafa verið í mesta lagi þrír hæstv. ráðherrar í allan dag, þrír eða fjórir. Ég sá hæstv. félagsmálaráðherra á vappi á ganginum og það væri fróðlegt að vita hver afstaða hans er til fundar hv. velferðarnefndar í fyrramálið sem er ætlað að fjalla um mál Flokks fólksins um launavísitöluna. (Forseti hringir.) Á dagskrá fundarins kemur fram að það eigi að afgreiða málið strax út, mál sem er nýkomið aftur inn í nefnd á milli 2. og 3. umræðu, en hæstv. félagsmálaráðherra lét hafa eftir sér í dag að hann teldi eðlilegt að málið tæki (Forseti hringir.) einhverjum breytingum í nefndinni. Hann er að koma því á framfæri núna fyrst á milli 2. og 3. umræðu. Það væri ánægjulegt ef hann sæi sér fært að mæta hér í ræðustól (Forseti hringir.) og lýsa aðeins afstöðu sinni til málsmeðferðar þessara mála Flokks fólksins.

(Forseti (HildS): Forseti minnir á að ræðutími í fundarstjórn forseta er ein mínúta.)