meðferð máls og úrskurður forseta.
Frú forseti. Það er eitt sem hefur verið nefnt hér á fyrri stigum í dag en er kannski ástæða til að nefna hér aftur. Í ljósi þess hvernig það bar að að þetta mál sé hér til umræðu þá hlýtur maður að spyrja sig: Hvað er það í samfélagsumræðunni og fréttum núna, hvaða þingmál eru það sem stjórnarflokkarnir vilja sleppa við að athygli beinist að? Það að setja þetta tiltekna mál á dagskrá í dag, miðað við aðdragandann, bendir til þess að það sé einhver ósögð saga hérna. Það er eitthvað undirliggjandi. Ég veit ekki hvort það er opinn nefndarfundur í hv. efnahags- og viðskiptanefnd í morgun þar sem Seðlabankinn fór yfir sjónarmið sín varðandi stýringu ríkisfjármálanna, hvort það er eitthvað er varðar samgönguáætlun og vandræði hæstv. innviðaráðherra í gær eða hvað það er. En það er einhver ósögð saga hérna sem getur ekki verið sú, miðað við aðdragandann frá 3. febrúar þar sem óskað var eftir þessari úttekt Lagastofnunar (Forseti hringir.) þar til í gær, þar sem allt var eins eðlilegt og það mögulega gat verið. Það getur ekki verið annað en að það sé eitthvað þarna úti sem ríkisstjórnin vill losna við að ræða. (Forseti hringir.) Nú hefst samkvæmisleikurinn: Hverju er ríkisstjórnin á flótta undan núna? (Forseti hringir.) Það er eitthvað.