157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[18:54]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin er ekkert á flótta undan einu eða neinu eins og ég hef útskýrt hérna áður en enginn virðist vilja heyra. Það er tímapressa á þessu máli. Við erum að vinda ofan af slæmum lögum sem sett voru fyrir tveimur árum. Við viljum tryggja það núna að upp undir 200 grásleppusjómenn komist á veiðar og um það snýst þessi flýtir. Mér finnst bara mjög almennilegt, ef svo má segja, að atvinnuveganefnd stóð ekki gegn þessari beiðni minni hlutans sem minni hlutinn stóð einn að. En síðan þegar ljóst var að þetta myndi taka þetta langan tíma og væri aðkeypt álit þá varð ljóst að það væri ekki hægt að verða við þessu. Þetta er ekkert flóknara en það. Þið hafið núna fengið úrskurðinn sem þið báðuð um. Hann er kominn og stundum þarf bara að stoppa og sætta sig við að málinu sé lokið.