157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[18:58]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Hér hafa einhverjir leitast við að gera það eitthvað tortryggilegt eða láta eins og það sé eitthvað óeðlilegt að menn séu að gera athugasemd við skipulag dagskrárinnar í dag í ljósi þess að menn hafi í viðeigandi nefnd verið að biðja um það sem er bara afskaplega eðlilegt gagn í þessu máli, sem er álit Lagastofnunar háskólans. Það er frekar farið að hljóma eins og málið sé eiginlega illa unnið, ef eitthvað er, að það þoli ekki slíkt álit. Það má ekki gleymast að það sem er kannski undarlegt í málinu er að menn séu ekki tilbúnir til að fallast á að afla slíks álits. Ég man að nú fyrir skemmstu vorum við ekkert í ósvipaðri stöðu, þótt hún sé ólík að mörgu leyti, í allsherjarnefnd þar sem við höfðum óskað eftir því að fyrir nefndina kæmu ungmenni í máli þar sem það átti sannarlega við og því var nú ekki tekið vel á þeim tíma. En mun síðar þegar sambærilegt mál var til umfjöllunar höfðu fulltrúar meiri hlutans í nefndinni bara sambærilegt frumkvæði að því að fá ungt fólk fyrir nefndina (Forseti hringir.) og það reyndist afskaplega vel og heilladrjúgt fyrir umfjöllunina. Það gerir mál aldrei verri að fá almennilega umræðu um þau í nefnd. Að slík ósk minni hluta sé gerð tortryggileg (Forseti hringir.) er hluti af einhverju tiltölulega vitlausu.