157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[18:59]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Af því við erum að ræða um vönduð vinnubrögð og vandaða lagasetningu hér í dag þá er vert að vekja athygli á því að í þessum töluðu orðum, eða fyrir nokkrum mínútum, var að berast tölvupóstur frá nefndarritara hv. velferðarnefndar þar sem eru drög að breytingartillögu, sem er minni háttar breyting, af því að það er stefnt að afgreiðslu málsins í fyrramálið. Það er stefnt að afgreiðslu málsins í fyrramálið. Það staðfestir það sem við höfum verið að koma á framfæri hér í dag, að það sé ekki gert ráð fyrir því að umsagnir fjármálaráðuneytisins, hagfræðinga sem komið hafa fram og Seðlabankans sem kom fram fyrir örfáum dögum og hefur gríðarlegar áhyggjur af áhrifum þessa frumvarps á ríkisfjármálin — það á að líta fram hjá því öllu. Það á að afgreiða málið án aðkomu þessara aðila og það er grafalvarlegt mál og enn eitt merkið um hvers konar vinnubrögð er verið að stunda á hinu háa Alþingi þessa dagana.